Niðurgreiddar ferðaávísanir
- mars 10, 2023

Félagsfólki aðildarfélaga STF, nema félagsmönnum í Brú félag stjórnenda, gefst kostur á að kaupa ferðaávísun til þess að lækka verð á valinni gistingu. Á mínum síðum er hægt að sjá hvernig ferðaávísun er notuð og framboð gistingar.
Með ferðaávísun er hægt að fá allt að 20% niðurgreiðslu til viðbótar á ferðaávísunarverðinu, af hverri pöntun á gistingu. Heildarniðurgreiðsla á hvern félagsmann verður að hámarki samtals kr. 20.000 á hverju almanaksári. Tekinn verður 1 punktur fyrir hverja 1000 kr. niðurgreiðslu.
Ferðaávísun er hægt að nýta hjá Útivist, Ferðafélagi Íslands og Fjallaferðum. Auk niðurgreiðslu fær félagsfólk afslátt af ferðum þessara fyrirtækja. Á vef ferðaávísunar undir valmynd í vinstra horni eru allar upplýsingar um ferðir sem nú þegar standa til boða árið 2023
Félagsfólk sækir ferðaávísun og pantar í gönguferðir í gegnum mínar síður.
Netfang
Opnunartími
Skrifstofan er opin alla virka daga milli klukkan 08:00 og 16:00, nema á föstudögum þá lokar klukkan 15:00.
Copyright Ⓒ STF. All rights reserved.