13. nóvember 2026
Bilun í tölvupóstkerfi
Bilun hefur komið upp hjá Microsoft sem hefur áhrif á tölvupóstþjónustu víða um heim, þar á meðal hjá STF – Sambandi stjórnendafélaga.
Af þessum sökum liggur tölvupóstkerfi okkar niðri eins og er og getum við hvorki sent né tekið á móti tölvupósti.
Microsoft vinnur að því að leysa vandann og vonumst við til að þjónustan komist í eðlilegt horf sem fyrst.
Á meðan er hægt að hafa samband við skrifstofu STF í síma 553 5040.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
