Reglugerð sjúkrasjóðs STF
Reglugerð sjúkrasjóðs STF
1. grein: Heiti sjóðsins
1.1. Sjóðurinn heitir Sjúkrasjóður STF. Heimili hans og varnarþing er í Kópavogi. Félagar eru þeir sem skilað hafa iðgjaldi af launum til sjóðsins, umsömdu samkvæmt kjarasamningum hverju sinni.
2. grein: Verkefni sjóðsins
2.1. Verkefni sjóðsins er að greiða styrki vegna launataps félaga í veikinda- og slysatilfellum, svo og forvarnarstyrki, endurhæfingarstyrki, útfararstyrki og aðra styrki samkvæmt skilyrðum reglugerðar. Allar greiðslu fara eftir rétti félaga.
2.2. Sjóðurinn getur varið fé til að stuðla að bættu heilsufari með framlögum til verkefna á sviði heilbrigðis- og öryggismála.
3. grein: Tekjur sjóðsins
3.1. Samningsbundið gjald frá vinnuveitendum.
3.2. Aðrar tekjur.
4. grein: Stjórn og rekstur
4.1. Stjórn sjóðsins er skipuð þremur einstaklingum og tveimur til vara. Gjaldkeri STF skal vera einn þessara einstaklinga og fara með formennsku sjóðsstjórnar. Að öðru leyti skiptir sjóðsstjórn með sér verkum.
4.2. Stjórn STF skipar í stjórn sjóðsins til tveggja ára í senn.
4.3. Skoðunarmenn reikninga fyrir STF yfirfara og árita reikninga sjóðsins.
4.4. Allan kostnað vegna rekstrar sjóðsins greiði hann sjálfur. Laun stjórnar skal ákveða á stjórnarfundi STF.
4.5. Almenn stjórnun, afgreiðsla og bókhald skal vera á skrifstofu STF.
4.6. Þegar farsóttir geysa getur stjórn sjúkrasjóðs leyst sjóðinn frá greiðsluskyldum sínum um stundarsakir, þó ekki lengur en 6 mánuði. Stjórn sjúkrasjóðs getur einnig lækkað greiðslur, ef afkomu sjóðsins virðist hætta búin. Slíkt skal þó aðeins gera með samþykki stjórnar STF.
5. Grein: Höfuðstóll og ávöxtun
5.1. Eignir sjóðsins skulu aldrei vera lægri en fjórfalt fasteignaverðmæti húseigna sjóðsins. Þá upphæð má sjúkrasjóðsstjórnin ekki skerða nema með samþykki stjórnar STF.
5.2. Stjórn STF og sjúkrasjóðs varðveitir eignir sjóðsins.
5.3. Sjóðstjórninni er heimilt að ávaxta fé sjóðsins með kaupum á verðbréfum, tryggðum með öruggu fasteignaveði, ríkisskuldabréfum eða á annan arðvænlegan hátt.
5.4. Ávallt skal þess gætt að ráðstöfun á fé sjóðsins brjóti eigi í bága við tilgang hans og verkefni.
6. Grein: Réttur til sjúkradagpeninga og styrkja
6.1. Rétt til sjúkradagpeninga og styrkja hafa þeir einir sem greitt er af stéttarfélagsgjöld og samningsbundnar greiðslur til sjúkrasjóðs.
6.2. Nýr félagi
6.2.1. Nýr félagi öðlast rétt til styrkja úr sjúkrasjóði eftir 6 mánaða samfelldar greiðslur.
6.2.2. Nýr félagi ávinnur sér rétt til sjúkradagpeninga með eftirtöldum hætti:
Eftir 6 mánuði - 3 mánuðir í sjúkradagpeninga
Eftir 12 mánuði - 4 mánuðir í sjúkradagpeninga
Eftir 36 mánuði - 6 mánuðir í sjúkradagpeninga
Eftir 60 mánuði - 9 mánuðir í sjúkradagpeninga
6.2.3. Nýr félagi sem kemur með réttindi frá öðrum sjúkrasjóði fær ekki lakari rétt en hann hafði hjá þeim sjóði og nýtur þess réttar frá fyrsta mánuði. Réttur hans verður þó aldrei meiri en hámarksréttur skv. reglugerð þessari.
6.3. Félagi sem vinnur fram yfir 67 ára aldur og atvinnuveitandi greiðir áfram af til sjúkrasjóðs heldur dagpeningarétti í 3 mánuði eftir að samningsbundnum greiðslum frá atvinnurekanda lýkur.
6.4. Réttur skapast ekki í sjúkrasjóði STF með greiðslum félagsgjalda af atvinnuleysisbótum, fæðingarorlofsgreiðslum og/eða sjúkradagpeningagreiðslum. Slíkar greiðslur viðhalda áunnum rétti hjá þeim sem áður hafa aflað sér réttinda hjá STF.
6.5. Réttur til sjúkradagpeninga og styrkja fellur niður hafi engin iðgjöld borist í þrjá samfellda mánuði.
6.6. Viðhald réttinda
6.6.1. Til þess að félagi haldi fullum rétti til styrkja eftir starfslok þurfa greiðslur að hafa borist sjóðnum reglulega síðustu 10 ár fyrir starfslokin. Bætur/styrkir skerðast hlutfallslega fyrir hvert ár sem vantar á 10 ár. (Dæmi: eftir 9 ár verða bætur/styrkir 90% ). Gildir þetta fyrir hvern þann félaga sem kýs að hætta störfum frá 65 ára aldri, enda sýni hann fram á að sinna ekki launuðu starfi og greiða til annars félags.
6.6.2. Félagi sem hafði full réttindi í sjóðnum og hafði greitt í 10 ár, en hefur misst þau og er byrjaður að greiða aftur í sjóðinn, fær aftur full réttindi í sjóðnum samkvæmt eftirfarandi:
· Hefur ekki greitt í sjóðinn í eitt ár, verður þá að greiða í eitt ár og fær þá full réttindi.
·Hefur ekki greitt í sjóðinn í tvö ár, verður þá að greiða í tvö ár og fær þá full réttindi. o.s.frv.
6.7. Til þess að starfandi félagi fái fullan rétt til sjúkradagpeninga og styrkja úr sjúkrasjóði skal miða við lágmarkstekjuviðmið sem er kr. 590.442 (Fylgi launabreytingum kjarasamnings STF og Fjármála-og efnahagsráðherra f.h. ríkisins (SNF), launafl. 10 – 7. þrepi. uppfært 01.11.2024). Sé greitt af lægri upphæð og/eða iðgjaldasaga ekki samfelld síðustu 6 mánuði, skerðast bætur og styrkir hlutfallslega í samræmi við það.
6.8. Óheimilt er að skapa sér rétt til sjúkradagpeninga og styrkja með greiðslu iðgjalda aftur í tímann. Ef verulegar breytingar verða á greiddum iðgjöldum skömmu fyrir umsókn um styrkveitingu úr sjóðnum frá einyrkja eða fjölskyldumeðlimi rekstraraðila smærri fyrirtækja, er heimilt að stöðva greiðslu, ákveða annað viðmiðunartímabil til ákvörðunar greiðslufjárhæðar og að krefjast frekari gagna frá opinberum aðilum.
7. Grein: Sjúkradagpeningar
7.1. Sjúkradagpeningagreiðslur hefjast þegar greiðslum frá vinnuveitanda lýkur samkvæmt samningum.
7.1.1. Sjálfstætt starfandi félagar öðlast ekki rétt til sjúkradagpeninga fyrr en að loknum þeim veikindarétti sem þeir hefðu aflað sér sem launamenn í sama starfi.
7.2. Hvenær greiðslur eiga ekki við
7.2.1. Bætur greiðast ekki þeim sem fá samsvarandi bætur frá Tryggingastofnun ríkisins, tryggingarfélagi eða vegna trygginga atvinnurekanda.
7.2.2. Sjúkradagpeningar eru ekki greiddir eigi félagi rétt á eða fái greiddan fullan örorkulífeyri.
7.2.3. Dagpeningar greiðast ekki þegar bótaskylda er vegna slyss eða atvinnusjúkdóma þ.m.t. bifreiðaslysa sem fellur á tjónvald og bætur fást greiddar skv. skaðabótalögum úr hendi hans eða á grundvelli ábyrgðartrygginga.
7.3. Umsækjanda er skylt að greina frá launatekjum, greiðslum tryggingarfélags og Tryggingastofnunar. Rangar upplýsingar geta valdið missi réttar til sjúkradagpeninga frá sjúkrasjóði. Umsækjandi veitir með undirskrift sinni á umsóknarblaði sjúkrasjóði heimild til að afla frekari gagna er varðar umsóknina, s.s. upplýsingar um staðgreiðslu skatta, upplýsingar um reiknað endurgjald og/eða staðgreiðsluskrá frá RSK, upplýsingar um greiðslur frá TR og/eða öðrum stofnunum sbr. lög um meðferð persónuupplýsinga. Enn fremur veitir umsækjandi trúnaðarlækni sjúkrasjóðsins heimild til að yfirfara læknisvottorð og önnur gögn er tengjast umsókninni.
7.3.1. Stjórn sjúkrasjóðs hefur heimild til að vísa erindum til trúnaðarlæknis STF. Hafni umsækjandi því að veita trúnaðarlækni upplýsingar á hann á hættu að missa rétt til sjúkradagpeninga.
7.4. Þegar sótt er um sjúkradagpeninga skal fylgja með umsókn:
·Launaseðlar, 12 mánuði aftur í tímann.
·Sjúkradagpeningavottorð sem gefið er út á Íslandi
·Staðfesting vinnuveitanda að viðkomandi hafi fullnýtt veikindarétt sinn hjá vinnuveitanda.
7.4.1. Hægt er að sækja um sjúkradagpeninga einn mánuð aftur í tímann.
7.4.2. Dagpeningagreiðslur greiðast mánaðarlega eftir á.
7.4.3. Félagsgjöld dragast frá sjúkradagpeningagreiðslum
7.5. Endurteknar umsóknir
7.5.1. Litið skal á að um framhaldsumsókn sé að ræða, ef sótt er aftur um dagpeningagreiðslu vegna veikinda/slyss innan 24 mánaða frá fyrri greiðslum.
7.5.2. Sá sem fullnýtt hefur rétt sinn til dagpeningagreiðslna ávinnur sér rétt að nýju í samræmi við grein 6.2, þó aldrei fyrr en að 24 iðgjaldamánuðum liðnum.
7.6. Dagpeningagreiðslur samkvæmt réttindaávinnslu skal tryggja 80,0% af meðaltalslaunum síðustu 12 mánaða fyrir veikindi/slys til loka réttindatímabils.
7.6.1. Meðan vinnuveitandi greiðir lög og samningsbundin dagvinnulaun, greiðist töpuð yfirvinna í allt að 3 mánuði samkvæmt réttindaávinnslu, meðaltal yfirvinnu á 6 mánaða tímabili fyrir veikindi, hámark 295.221 kr. á mán. (Fylgi launabreytingum kjarasamningi STF og Fjármála-og efnahagsráðherra f.h. ríkisins (SNF), 50% af launafl. 10 - 7. þrepi. ( uppfært 01.11.2024 )
7.6.2. Heimilt er samkvæmt mati sjóðsstjórnar að greiða hlutfallslegar dagpeningagreiðslur um tiltekinn tíma ef stjórnandi getur ekki stundað fulla vinnu, þó aldrei lengur en réttur viðkomandi segir til um skv. grein 6.2.
7.6.3. Ýmsar sérstakar greiðslur reiknast ekki til bóta svo sem bifreiðastyrkir og annað að mati stjórnar sjúkrasjóðs.
7.7. Veikindi þurfa að hafa varað minnst 14 daga til að hægt sé að sækja um sjúkradagpeninga vegna þeirra
7.8. Sjúkrasjóður greiðir fyrir umbeðin sjúkradagpeningavottorð, ef kvittun fylgir með.
7.9. Komi til þess að félagi hafi fengið laun eða örorkubætur á sama tímabili og hann fékk greidda sjúkradagpeninga, skal hann endurgreiða sjóðnum að fullu án tafar.
7.10. Bótagreiðslur taka breytingum samkvæmt viðmiðum launabreytinga eftir ákvörðun sjúkrasjóðsstjórnar
7.11. Stjórn sjóðsins metur meðferð umsókna að öðru leyti en því sem fram kemur í reglugerð þessari.
8. Grein: Styrkir
8.1. Löglegur reikningur þarf að fylgja umsóknum um styrki og skal ekki vera eldri en 6 mánaða gamall. Reikningur/greiðslukvittun verður að vera með stimpli og kennitölu viðkomandi fyrirtækis og nafni og kennitölu félagans.
8.2. Sjúkraþjálfun, endurhæfing - Sjúkraþjálfun, sjúkranudd hjá löggiltum aðila, heilsunudd hjá skráðum aðila innan FIHN, meðferð hjá kírópraktor og HL stöðinni.
Greitt er 75% af kostnaði, hámark 80.000 á 12 mánaða tímabili
Löggild greiðslukvittun verður að fylgja með umsókn.
8.3. Sálfræðingur/félagsráðgjafi - Greitt er 75% af kostnaði fyrir hvert skipti, hámark kr. 80.000, yfir 12 mánaða tímabil.
Löggild greiðslukvittun verður að fylgja með umsókn.
8.4. Gleraugu, augnaðgerðir, heyrnartæki
8.4.1. Styrkur til kaupa á sjónglerjum/linsum, 75% af kostnaði, hámark kr. 70.000 á 3 ára fresti.
8.4.2. Styrkur til laser/augnaðgerða, 75% af kostnaði, hámark kr. 100.000 x 2, á 4 ára fresti.
8.4.3. Styrkur til kaupa heyrnatækja, 75% af kostnaði, hámark kr. 125.000 x 2, á 4 ára fresti.
8.5. Fæðingarstyrkur og ættleiðing
8.5.1. Fæðingarstyrkur kr. 170.000 . Fæðingarvottorð, skal fylgja umsókn. Þetta gildir einnig ef um frumættleiðingu eða töku barns yngra en fimm ára í varanlegt fóstur.
8.5.2. Styrkur vegna frjósemismeðferðar, 75% af kostnaði, hámark 150.000 kr. Í allt að 4 skipti á 2ja ára fresti.
8.6. Heilsudvöl í Hveragerði o.þ.h.
8.6.1. Vegna endurhæfingar. Einu sinni á hverju 12 mánaða tímabili á heilsustofnun innanlands, viðurkenndri af TR., 75% af kostnaði, hámark kr. 150.000.
8.6.2. Vegna endurhæfingar aldraðra og öryrkja sem eiga rétt hjá sjóðnum greiðist vistkostnaður í allt að 28 daga á hverju 24 mánaða tímabili á heilsustofnun innanlands viðurkenndri af TR., 75% af kostnaði, hámark kr. 150.000.
8.7. Heilsustyrkir/líkamsræktarstyrkir - Greitt er fyrir árskort eða árshlutakort í viðurkenndum líkamsræktarstöðvum, sundstöðum, skíðastöðum og fleiri íþróttum sem stuðla að heilsueflingu, skv. sérstökum lista heilsusjóðs. Greitt er 75% af kostnaði, hámark kr. 35.000. á hverju 12. mánaða tímabili. Sjóðurinn veitir ekki styrki vegna kaupa á klippikorti eða stökum tímum. Löggild greiðslukvittun verður að fylgja með umsókn.
8.8. Ferðastyrkur vegna veikinda. Nýta verður fyrst styrk frá TR. Hafni TR greiðslu getur sjóðsstjórn metið umsóknina út frá rökum TR. Greitt er fyrir
40 til 100 km kr. 5.000,- 250 til 400 km kr. 17.000,-
100 til 250 km kr. 10.000,- 400 og lengra kr. 25.000,-
(Ein ferð er ferð fram og til baka) Hámark er greitt fyrir 12 ferðir á ári. Tilvísun frá lækni eða reikningur fylgi umsókn, ásamt staðfestingu á höfnun TR.
8.9. Forvarnir/Heilsufarsskoðanir/Hjartavernd/Krabbameinsleit
8.9.1. Greitt er 75% af kostnaði vegna ítarlegrar heilsufarsskoðunar á 4 ára fresti, hámark kr. 36.000. „Um er að ræða ítarlega heilsufarsskoðun, hugsuð fyrir þá sem vilja taka stöðuna á eigin heilsu með jafnvel lífstílsbreytingu í huga. Í þessari skoðun eru tekin líkamleg próf og andleg líðan metin.“
8.9.2. Greitt er fyrir áhættumatsskoðun hjá Hjartavernd eða sambærilegum aðila, 75% af kostnaði á 4 ára fresti, hámark kr. 25.000.
8.9.3. Reglubundin krabbameinsleit, greitt 75% af kostnaði, hámark kr. 32.000 á 24 mánaða fresti.
8.10. Löglegur reikningur þarf að fylgja umsóknum um styrki og skal ekki vera eldri en 6 mánaða gamall. Reikningur/greiðslukvittun verður að vera með stimpli og kennitölu viðkomandi fyrirtækis og nafni og kennitölu félagans.
9. Grein: Veikindi maka/barna
9.1. Styrkur til aðhlynningar á veiku barni 18 ára og yngri eða maka, eftir að greiðslu samkvæmt samningi við vinnuveitenda lýkur. Sjúkradagpeningar í allt að 90 daga á hverju 12 mánaða tímabili. Styrkur miðast við 8. grein. Læknisvottorð og staðfesting vinnuveitanda um að launagreiðsla hafi fallið niður fylgi umsókn.
Heildargreiðslur sjúkradagpeninga til einstakra félaga geta aldrei farið yfir 9 mánuði á hverju 24 mánaða tímabili
9.2. Styrkur til félaga í starfi vegna mjög alvarlegra eða langvarandi veikinda og eða andláts maka eða barna innan 18 ára aldurs sem ekki hefur nýtt sér gr. 10.1. Viðkomandi getur sótt um styrk allt að 366.000 kr. á hverju 12 mánaða tímabili.
9.3. Styrkur til félaga í starfi vegna andláts maka eða barns innan 18 ára aldurs, allt að 300.000 kr. Við sérstakar aðstæður er sjóðsstjórn heimilt að greiða viðbótarstyrk. Stjórn sjúkrasjóðs metur styrkveitingu samkvæmt vottorðum og framlögðum reikningum.
10. Grein: Dánarbætur
10.1. Við fráfall félaga í starfi greiðast dánarbætur kr. 720.000 til dánarbús eða eftirlifandi maka, enda hafi viðkomandi verið sjóðsfélagi í a.m.k. 6 mánuði við andlát.
10.2. Greiða börnum eða forráðamanni barna félaga, fyrir hvert barn innan 18 ára aldurs kr. 260.000.
10.3. Ef félagi er á sjúkradagpeningum þegar hann fellur frá, greiðast sömu dánarbætur og fyrir félaga í fullu starfi.
10.4. Við fráfall félaga sem er skráður aldraður eða öryrki og á rétt hjá sjóðnum greiðast dánarbætur til lögerfingja kr. 300.000 (sjá þó grein 6.6)
11. Grein: Lögfræðiaðstoð
11.1. STF gefur félögum kost á að leita ókeypis ráðgjafar (0,5 klst.) hjá lögfræðingi sambandsins, leita verður samþykkis ábyrgðamanns sjúkrasjóðs fyrir lögfræðiaðstoð, sem sér um að panta tíma. Lögfræðiaðstoðin snýr að vinnutengdum ágreiningi/vandamálum.
11.2. Styrkur að hámarki 75% af reikningi eða að hámarki kr. 500.000.- er veittur ef samþykki ábyrðamanns sjúkrasjóðs liggur fyrir, sem sér um að panta tíma hjá lögfræðingi STF. Lögfræðiaðstoðin snýr að vinnutengdum ágreiningi/vandamálum.
12. Grein: Meðferð umsókna og útgreiðslur
12.1. Stjórn sjúkrasjóðs kemur saman mánaðarlega og afgreiðir þær umsóknir sem fyrir liggja hverju sinni. Umsóknir skulu undirritaðar af minnst tveimur stjórnarmönnum sjúkrasjóðs
12.2. Sjúkradagpeningar og styrkir úr Sjúkrasjóði STF greiðast mánaðarlega og skulu umsóknir berast rafrænt eða í tölvupósti til STF, ásamt nauðsynlegum gögnum fyrir 20. hvers mánaðar. Útgreiðslur fara fram síðasta virka dag hvers mánaðar
13. Grein: Um breytingar á reglugerð
13.1. Reglugerð þessari má breyta á löglega boðuðum stjórnarfundi STF.
13.2. Leggi stjórnarmaður(menn) fram tillögu á löglega boðuðum stjórnarfundi STF þá verður stjórn sjúkrasjóðs falið að kostnaðarmeta breytingartillögurnar. Stjórn STF getur eftir kostnaðarmat þá fyrst samþykkt breytingartillöguna, en til þess þarf ¾ hluta atkvæða fundarmanna.
14. Grein: Gildistaka
Upphafleg reglugerð samþykkt 1. mars 1974 af stjórn VSSÍ, en endanlega samþykkt á þingi VSSÍ 6. júlí 1975.
Gildistímar breytinga á reglugerð.
01.01 1980, 26.06 1983, 01.07 1985, 01.07 1987, 01.07 1989, 01.07.1991, 01.07.1993, 01.07.1995, 01.06 1997, 01.06 1999, 01.06 2001,01.06.2003, 01.06.2005, 02.06.2007, 06.06.2009, 01.06.2010, 04.06.2011, 01.06.2013, 01.06.2015, 01.01.2017, 01.06.2018, 15.07.2019, 22.07.2020, 15.09.2020, 20.11.2020, 01.01.2024, 1.10.2024, 1.3.2025.
Endurskoðað samkv. Samtökum atv. 01.05.2015. 01.01.2016, 29.08.2016, 01.05.2017, 01.05.2018. 10.05.2019
Endurskoðað af Jóni hjá Sókn lögmannstofu 13.12.2023.