Einstaklingsstyrkir
Styrkupphæð getur aldrei orðið hærri en 80% af reikningi.
o 200.000 kr. vegna náms, námskeiða, ráðstefna og málþinga, þar af má nýta:
- 150.000 kr. vegna kynnisferða
- 35.000 kr. vegna tómstundanámskeiða
o 60.000 kr. vegna ferðakostnaðar innanlands.
Styrkur endurnýjast 12 mánuðum eftir að hann var greiddur út.
Hvað er styrkt?
Sjóðurinn veitir styrki til náms og einstakra námskeiða, ráðstefna, tómstunda, málþinga og fræðslu- og kynnisferða innanlands og utan. Verkefnin þurfa almennt að varða fagsvið eða starf þeirra sem sækja um eða getið orðið þeim til tekna.
Nánari upplýsingar um styrkhæf verkefni og styrkupphæðir má finna í reglugerð sjóðsins.
Hvar sæki ég um styrki?
Sótt er um styrki á Mínum síðum. Svo umsókn sé afgreidd í lok mánaðar þarf hún að berast ásamt öllum fylgigögnum eigi seinna en 20. þess mánaðar. Hægt er að sækja um styrki vegna verkefnis sem átti sér stað innan við 12 mánaða miðað við umsóknardag. Fylgigögnum skal skilað inn með rafrænum hætti í gegnum Mínar síður.
Þú getur séð yfirlit styrkja og stöðu umsókna á Mínum síðum.
Hverjir eiga rétt á styrk?
Réttur félaga til úthlutunar úr sjóðunum er háður því að greitt hafi verið iðgjald í sjóðinn vegna umsækjenda í samfellt sex mánuði. Ef greiðslur eru undir lágmarksviðmiði skerðist réttur til styrkja og bóta hlutfallslega. Reglur um lágmarksgreiðslur í sjóðinn má finna í reglugerð starfsmenntasjóðs.
Ef greitt hefur verið iðgjald í sjóðinn vegna síðustu 10 ár af starfsævi þeirra helst réttur í sjóðnum út ævina.
Fyrirtækjastyrkir
Hámarksstyrkur á almanaksári er 80% af námsskeiðskostnaði, þó að hámarki 200.000 kr. í hverju einstöku námi. Ef um dýrara nám er að ræða eins og hjá endurmenntunardeildum háskólanna getur styrkupphæð orðið allt að 600.000 kr.
Styrkur til fyrirtækis skerðir ekki einstaklingsstyrk félaga.