28. júní 2024
Ný heimasíða STF
Gaman að segja frá því að ný og glæsileg heimasíða STF er komin í loftið. Verkefnið var nokkuð umfangsmikið enda í mörg horn að líta, þjónusta STF er umfangsmikil og heimasíða félagsins mikilvæg þegar kemur að því að veita upplýsingar og þjónustu.
Það var fyrirtækið Vefsson sem sá um hönnun og framleiðslu á vefnum, óhætt er að segja að samstarfið hafi verið til fyrirmyndar og þökkum við Vefsson kærlega fyrir.