29. júlí 2024
Sameining félaga!
Þann 26. júní sl. var stofnfundur Félags Stjórnenda haldinn að Hlíðarsmára 8
En það voru Stjórnendafélag Suðurlands, Stjórnendafélag Suðurnesja, Stjórnendafélagið Jaðar á Akranesi og Stjórnendafélag Vesturlands sem sameinuðust í þetta öfluga félag, Félag Stjórnenda.
Sameiningarviðræður stóðu yfir í rúmlega eitt ár á milli félagana og upp úr því varð þetta öfluga félag til.
Félag Stjórnenda er með félagsnúmer 947 og kt. 540775-1339
Nýja stjórn sameinaðs félags skipa:
Formaður Viðar Þór Ástvaldsson
Varaformaður Þórmar Viggósson
Gjaldkeri Einar Óskarsson
Ritari Eyþór Óli Frímansson
Meðstjórnandi Sævar Jóhannsson
Meðstjórnandi Kristján Sveinsson
Meðstjórnandi María Valdimarsdóttir
Meðstjórnandi Helgi Jóhannsson
Við hjá STF óskum þeim velfarnaðar í störfum sínum.