1. mars 2026
Frádráttur á móti styrkjum frá STF í skattframtali
Nú er búið að opna fyrir skil á skattframtali og því minnum við félagsfólk sem fékk styrk á árinu 2025 að huga að því hvort heimilt sé að færa kostnað til frádráttar.
Sjá nánar um frádrátt á móti styrkjum á vef RSK.
Almenna reglan er að allir styrkir frá stéttarfélögum teljast til skattskyldra tekna móttakanda. Frá styrkjum úr starfsmenntunarsjóðum og endurmenntunarsjóðum stéttarfélaga er heimilt að draga kostnað vegna námskeiða sem tengjast starfi viðkomandi styrkþega, en ekki ef um er að ræða námskeið sem telst vera tómstundagaman og þar með persónulegur kostnaður. Frádráttur verður aldrei hærri en styrkfjárhæð.
Sjá nánar um frádrátt á móti styrkjum á vef RSK.
Þú getur nálgast upplýsingar um hvaða styrki þú hefur fengið á árinu 2025 með því að skrá þig inn á Mínar síður og þar velur þú Valmynd - Saga - Styrkjasaga.
