23. febrúar 2026
Ferðaávísanir - ávísun á frábært ferðaár
Við minnum á að félagar í stjórnendafélögum innan STF geta keypt niðurgreidda Ferðaávísun inni á Mínum síðum og fengið aðgang að frábærum tilboðum í gistingu og afþreyingu um allt land.
Ávísunin gildir sem inneign sem hægt er að nota til að kaupa gistingu eða afþreyingu hjá fjölmörgum samstarfsaðilum. Ávísunin er rafræn og rennur ekki út. Alls eru 24 hótel og gistiheimili í samstarfi við ferðaávísun og 2 afþreyingarfyrirtæki (Athugið að fjöldi samstarfaðila er breytilegur eftir árstíma). Hægt er að skoða það sem er í boði hverju sinni inni á Mínum síðum undir: Valmynd - Ferðaávísun - Framboð.
Niðurgreitt er 30% af keyptri upphæð, þó að hámarki um 25.000 kr. fyrir árið 2026. 15 punktar dragast frá punktastöðu félagsfólks við fulla nýtingu. Þegar niðurgreiðslan er fullnýtt er þó áfram hægt að kaupa Ferðaávísun til að nýta tilboðin sem eru í boði.
Hvernig nota ég Ferðaávísun í gistingu?
- Þú skoðar framboðið inni á Mínum síðum og finnur þann áfangastað sem hentar.
- Þú hefur síðan samband við hótelið og athugar hvort það sé laust á þeim dagsetningum sem henta og lætur vita að þú viljir bóka með Ferðaávísun á þeim kjörum sem því fylgir.
- Í kjölfarið kaupir þú Ferðaávísun á vefnum fyrir bókunarupphæðinni.
- Þegar þú mætir á áfangastað gefur þú upp kennitölu þína. Þú þarft engu að framvísa öðru en persónuskilríkjum.
Er hægt að fá Ferðaávísun endurgreidda?
Já, þú getur fengið ávísunina endurgreidda hvenær sem er, en þá aðeins þá upphæð sem þú lagðir sjálf/ur út. Þá punkta sem þú notaðir við kaupin færðu einnig til baka. Óskað er eftir endurgreiðslu inni á Mínum síðum.
