Gjafabréf og kort
Félagsfólki í stjórnendafélögum innan STF bíðst niðurgreiðsla á fjölda orlofsgæða. Gjafabréf og kort eru frábær kostur til að gera fríið hagkvæmara – og jafnvel gefa góða orlofsupplifun í gjöf.
Hægt er að kaupa gjafabréfin og kortin rafrænt á Mínum síðum.
Gjafabréf Icelandair
Gjafabréf að andvirði 30.000 kr. Sjóðsfélagar greiða 22.000 kr fyrir bréfið og 2 orlofspunkta.
Hægt er að kaupa 2 bréf á almanaksári.
Gjafabréfin gilda sem peningagreiðsla upp í öll flug eða pakkaferðir Icelandair. Sjá skilmála gjafabréfa Icelandair. Gjafabréfin gilda í 5 ár.
Hver sem er getur nýtt sér gafabréfið og hægt er að nota það í fleiri en eina bókun jafnt innan- og utanlands.
Gjafabréfin fást ekki endurgreidd.
Ef bókað er í gegnum þjónustuver Icelandair gilda reglur um þjónustugjöld.
Hægt er að kanna stöðu gjafabréfs hér.
Veiðikortið
Félagsfólki í aðildarfélagi innan STF býðst að kaupa Útilegukortið á sérstöku félagsverði á Mínum síðum eða á skrifstofu STF. Kortið er mjög hagkvæmur valkostur sem hentar jafnt veiðimönnum sem fjölskyldufólki.
Með Veiðikortið í vasanum er hægt að veiða nær ótakmarkað í 38 vatnasvæðum vítt og breitt um landið. Handbók hverju seldu korti þar sem má finna leiðbeiningar og reglur. Veiðikortið er sent í pósti til kaupanda næsta virka dag. Veiðikortið er stílað á einn einstakling og þurfa korthafar að merkja kortið með kennitölu sinni í þar til gerðan reit.
Fara ber eftir öllum reglum og upplýsingum um veiðisvæðin sem fram koma á vef Veiðikortsins.
Útilegukortið
Félagsfólki í aðildarfélagi innan STF býðst að kaupa Útilegukortið á sérstöku félagsverði á Mínum síðum.
Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði innan gistináttanna 28 en einungis má gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti. Frekari upplýsingar má finna á vef Útilegukortsins.
Útilegukortið fer í sölu í seinni hluta mars 2026.



