SAMBAND STJÓRNENDAFÉLAGA

Hefja töku lífeyris

Að ýmsu þarf að huga þegar taka á lífeyri. Nauðsynlegt er að vita hver réttindin eru og hvaða reglur gilda.

dscf8703 min
Lífeyrismál

Hvað þarf að hafa í huga?

Þegar launafólk fer að nálgast efri ár á vinnumarkaði er ekki úr vegi að viðkomandi kynni sér réttindi sín hjá lífeyrissjóðnum og ríki. Ýmsar spurningar geta vaknað sem nauðsynlegt er að leita svara við. Við hvetjum okkar félagsmenn til þess að leita til þess lífeyrissjóðs sem viðkomandi greiddi síðast í til þess að kynna sér stöðu sína.

Réttindi miðast við 67 ára aldur á almenna markaðinum, heimilt er að hefja töku lífeyris frá 60 ára aldri en þá með skerðingu. Jafnframt er heimilt að fresta töku lífeyris til 72 ára aldurs með álagi. Ekki er reiknað álag eftir 72 ára aldur.

Umsækjandi þarf jafnframt að sækja um hjá Tryggingastofnun. TR krefst þess að búið sé að sækja um lífeyrissjóði áður en til greiðslu kemur frá TR. Á umsóknareyðublað hjá lífeyrissjóði þarf að merkja við hvort óskað sé eftir því að viðkomandi lífeyrisjóður sendi staðfestingu til TR á því að sótt hafi verið um hjá lífeyrissjóði. Við hvetjum félagsmenn til þess að kynna sér málin hjá TR á vef þeirra. www.tryggingastofnun.is

Hér er að finna upplýsingar af vef Landsambands lífeyirssjóða undir fræðslu er að finna gagnlegar upplýsingar 

Hafi viðkomandi greitt í séreignarsjóð á starfsævinni þá getur launamaður hafið töku séreignarsparnaðar eftir að 60 ára aldri er náð. Viðkomandi getur ákveðið hvort hann dreifi séreigninni á ákveðinn ársfjölda eða skammtað sér ákveðna upphæð á mánuði þar til séreign er uppurin.