STF logo
Heimör til hægriUm okkurör til hægri

Af hverju STF

Afhverju STF

Af hverju ættir þú að velja STF? Hér fyrir neðan koma fram ýmsar góðar og gildar ástæður fyrir því afhverju að þú sem stjórnandi ættir að velja STF sem þitt stéttarfélag.

Afhverju að velja okkur?

Manns icon

4200

Meðlimir

Manns icon

7

Aðildarfélög

Manns icon

29

Orlofskostir

Manns icon

86

ára reynsla

Manns icon

Launavernd

Manns icon

Menntastyrkir

Manns icon

Heilsutengdir styrkir

Manns icon

Sjúkrasjóður

Hlutverk STF

STF-Samband Stjórnendafélaga eru félaga- og hagsmunasamtök verkstjóra og milli stjórnenda sem fer með samningsrétt verkstjóra- og stjórnendafélaganna. Í starfsemi STF er fólgin þjónusta fyrir öll 7 aðildarfélögin. Árið 1974 var sjúkrasjóður verkstjóra stofnaður og í dag er hann þriðji öflugasti sjúkrasjóður landsins. Markmið sjóðsins er að greiða bætur til verk- og millistjórnenda í veikinda og slysatilfellum og býður sjóðurinn félagsmönnum í mörgum tilfellum meiri réttindi en sambærilegir sjóðir annarra félaga.

Þjónusta

Þjónusta Sambands stjórnendafélaga felst meðal annars í því að sambandið heldur utan um allar þær greiðslur sem koma frá atvinnurekendum. Skrifstofan heldur utan um allar skilagreinar, kjarasamninga, tekur á móti umsóknum í sjúkrasjóð og endurmenntunarsjóð ásamt því að afgreiða þær samkvæmt reglugerðum Sambandsins.

Styrkir

Menntunarsjóður Samband stjórnendafélaga og SA veitir styrki til náms- og starfs endurmenntunar. Tilgangur sjóðsins er að styrkja verk- og millistjórnendur innan STF til endurmenntunar og gera þau hæfari til stjórnarstarfa. Styrkir eru veittir til náms á framhalds- og háskólastigi ásamt því að hver félagsmaður hefur rétt á tómstundastyrk einu sinni á 12 mánaða tímabili. Sambandið leggur áherslu á að stjórnunarmenntun, ásamt því að styrkja fræðslustjóra að láni og innri fræðslu.

Orlofshús

Aðildarfélög STF eiga 29 orlofskosti víðsvegar um landið. Þau eru í útleigu allan ársins hring. Húsin henta vel til að slappa af eða til að fara í skíðaferð yfir veturinn og eru af öllum stærðum og gerðum. Hægt er skoða og bóka orlofshús fyrir félagsmenn á orlofsvefnum. Einnig er hægt að sjá staðsetningu húsa undir flipanum, Um okkur/Orlofshús.

kommur

Ég er í stjórnendafélaginu því það er traust félag með góða styrki og mjög öflugan sjúkrasjóð.

Sigríður Sesselja Sæmundsdóttir

Mannauðsstjóri Airport Associates