SAMBAND STJÓRNENDAFÉLAGA

Breyting á Frímannskerfinu um áramót

Orlofshús

Nú um áramótin verður breyting á Frímannskerfinu hjá okkur (Orlofshúsakerfi).
Við höfum hingað til verið með inneignir og eitthvað um endurgreiðslur þegar fólk hættir við að fara í
eignirnar.

Nú um áramótin verður hætt með inneignir og byrjað að endurgreiða fólki til baka. Eldri inneignir munu þó halda áfram, þannig að fólk tapar ekki því sem það á inni. Það hefur verið dálítið mikið um að félagsmenn eru að leigja jafnvel tvær til þrár eignir, þó ekki allar á sama tíma. Og hætta svo við með stuttum og stundum engum fyrirvara.

Þannig að ákveðið hefur verið að endurgreiðslan verði 80% af leiguverði eignarinnar sem var leigð, ef
hætt er við leigu innan tveggja daga frá því að leigutími eigi að hefjast verður engin endurgreiðsla,
enda ekki líklegt að það náist að leigja viðkomandi eign aftur. Við vonum að þið takið vel í þessa breytingu, þetta er nauðsynlegt fyrir okkur til að geta haft stjórn á þessum hlutum og verður okkur öllum til hagsbóta.